Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Birgir í 85-106. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson lék í gær á einu höggi yfir pari á Telecom mótinu í golfi á Ítalíu. Birgir Leifur hefur leik nú á eftir en hann var í 85-106. sæti eftir fyrsta keppnisdag. Englendingurinn Richard Finch hafði nú áðan forystu, var á tíu höggum undir pari eftir tólf holur í dag.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur á Evrópumóti í golfi

Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, hóf í morgun keppni á Evrópumótinu á Ítalíu, en þar etur hann kappi við marga sterka kylfinga. Birgir Leifur er í 57.-78. sæti á einu höggi yfir pari eftir 12 holur.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur á einu yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, lauk keppni á einu höggi yfir pari á fyrsta hring á Evrópumótaröðinni á Ítalíu í dag. Birgir Leifur er í 85. sæti af 160 keppendum en ekki hafa allir lokið leik. Eftir fyrstu níu holurnar í dag var Birgir Leifur á tveimur höggum yfir pari en fékk fugl á tíundu holu og paraði eftir það.

Sport
Fréttamynd

Els þakkar þjálfara sínum

Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els þakkar þjálfara sínum stórbætt gengi sitt að undanförnu og segir hann manninn á bak við 13 högga sigur sinn á opna Asíumótinu um helgina.

Sport
Fréttamynd

Kylfusveinn Woods í kröppum dansi

Steve Williams, sem er kylfusveinn golfsnillingsins Tiger Woods slapp naumlega við meiðsli um helgina, þegar hann lenti ók bíl sínum útaf í kappakstri í heimalandi sínu, Nýja-Sjálandi.

Sport
Fréttamynd

Fádæma yfirburðir Els

Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els hafði fádæma yfirburði á atvinnumannamóti kylfinga sem lauk í Shanghai í Kína í nótt en mótið er hluti af evrópusku mótaröðinni. Hann lék holurnar 72 á 26 höggum undir pari og var 13 höggum á undan næsta manni sem var Bretinn Simon Wakefield. Daninn Thomas Björn varð þriðji.

Sport
Fréttamynd

Lék á fjórum yfir pari í gær

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er í 20.-26. sæti á áskorendamóti sem fram fer á Spáni. Hann er á sex höggum yfir pari að loknum þremur hringjum en hann lék þriðja hringinn í gær á fjórum höggum yfir pari. Birgir Leifur lýkur svo keppni í dag.

Sport
Fréttamynd

Els með örugga forystu í Kína

Á Opna Asíumótinu í Shanghai í Kína er Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els með fimm högga forskot eftir þrjá hringi og er á 19 höggum undir pari. Simon Wakefield frá Englandi er í öðru sæti á 14 höggum undir pari og hinn danski Tomas Björn þriðji á 12 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur lék vel á öðrum degi

Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi, náði sér ágætalega á strik á áskorendamóti á Spáni í gær. Hann lék annan hringinn á 71 höggi eða á einu höggi undir pari. Birgir Leifur er samtals á tveimur undir pari í 14.-21. sæti og á þokkalega möguleika á góðu sæti, þ.e.a.s. leiki hann vel í dag og á morgun.

Sport
Fréttamynd

Atwal efstur á Zurich Classic

Indverjinn Arjun Atwal hefur eins höggs forystu á eftir tvo hringi á Zurich Classic mótinu í golfi sem fram fer í Bandaríkjunum. Atwal er á 11 höggum undir pari  en JJ Henry frá Bandaríkjunum kemur næstur á 10 höggum undir pari. Vijay Singh, stigahæsti kylfingur heims, er í 6. sæti á 6 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur byrjaði illa

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, lauk leik á þremur höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi á áskorendamóti í golfi sem fram fer á Spáni. Birgir Leifur er í 56.-72. sæti, en aðeins 11 kylfingar náðu að leika undir pari á fyrsta hring.

Sport
Fréttamynd

Jöfn keppni í New Orleans

Chris DiMarco frá Bandaríkjunum og Arjun Atwal frá Indlandi eru efstir og jafnir á sjö höggum undir pari að loknum fyrsta hring á PGA-stórmóti í New Orleans. Fjórir kylfingar koma næstir á fimm höggum undir pari, þar á meðal Fídjieyingurinn Vijay Singh.

Sport
Fréttamynd

Els efstur á Opna Asíumótinu

Ernie Els frá Suður-Afríku hefur fjögurra högga forskot á Opna Asíumótinu í golfi sem fram fer í Shanghai. Hann lék í morgun á 62 höggum eða á 10 höggum undir pari og setti vallarmet. Ernie Els er á 15 höggum undir pari að loknum tveimur hringjum.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur á einu undir pari

Íslandsmeistarinn í höggleik og holukeppni í karlaflokki í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, hóf í morgun leik á Áskorendamótaröðinni á Spáni. Að loknum níu holum var Birgir Leifur á einu höggi undir pari og var í 2.-9. sæti en franskur kylfingur er efstur á þremur höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Singh sigraði aftur í Houston

Vijay Singh, kylfingurinn snjalli frá Fídjieyjum, sigraði á Opna Houston-mótinu í golfi annað árið í röð, en hann lagði Bandaríkjamanninn John Daly í bráðabana. Þeir voru jafnir að loknum 72 holum á 13 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Scott sigraði á Johnny Walker

Ástralinn Adam Scott sigraði á Johnny Walker mótinu í golfi sem lauk í Kína í morgun. Scott lék á 18 höggum undir pari og varð þremur höggum á undan Suður-Afríkumanninum Retief Goosen. Þetta er níundi titillinn sem Scott vinnur.

Sport
Fréttamynd

Scott með forystu í Kína

Ástralinn Adam Scott hefur forystu á Johnny Walker mótinu í golfi í Kína. Scott hafði fjögurra högga forystu eftir 36 holur en í morgun jók hann forystuna í sex högg.

Sport
Fréttamynd

Coles og Quigley efstir

Þegar keppni er hálfnuð á Houston-mótinu í golfi hafa Ástralinn Gavin Coles og Bandaríkjamaðurinn Brett Quigley forystu, eru báðir á tíu höggum undir pari. Fjórir kylfingar eru jafnir á níu höggum undir pari.

Sport